Aðbúnaður

Reynt hefur verið að vanda til verks hvað varðar aðbúnað í Hópsskóla svo hann verði eins og best verður á kosið. Bæjaryfirvöld í Grindavík hafa sýnt metnað í að reisa vandað mannvirki ásamt skólalóð. Staðsetning skólans er með þeim hætti að hann hentar vel inn í umhverfið. Hópsskóli er í nýjasta hverfi bæjarins næst öllum helstum íþróttamannvirkjum bæjarins og þá er skammt í sjálfa náttúruna. Það er von okkar að börnunum líði vel í Hópsskóla og umhverfi hans.

Verktakafyrirtækið Grindin í Grindavík sá um smíði hússins. Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Grindarinnar, flutti ávarp við vígslu skólans. Í máli hans kom fram að verkið hefði gengið afar vel fyrir sig. Fyrsta skóflustunga var tekin 24. júní 2008 af Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur, þáverandi forseta bæjarstjórnar þannig að verktíminn var 17 mánuðir. Fyrsta steypan kom í mót 29. júlí 2008.

Fjölmargir komu að þessu verkefni, þar á meðal: Arkitektarnir Logi og Ingólfur frá teiknistofunni Kollgátu á Akureyri. Verðfræðistofan Hnit sá um burðarþol og lagnir. Um lóðarhönnun sá teiknistofan Forma. Eftirlit var í höndum Héðins Hákonarsonar frá Verksýn. Aðalvertaki er Grindvík Grindavík. Rafverktaki Sigurður Ingvarsson, Garði. Pípulagnir sá Grindvíkingurinn Jón Guðmundsson um. Jón Einarsson í Grindavík sá um múrverk og Rúnar Sigurjónsson málari í Grindavík sá um málningavinnu. Jarðvinna og lóð var í höndum Litlafells Grindavík. Um loftræstingu sá Blikksmíði Hafnarfirði. Dúktak í Reykjavík sá um dúkalagnir og Pétur Bragason verkfræðingur var tæknimaður verktaka.

Hópsskóli
Suðurhópi 2
240 Grindavík
Sími 420 1180
hopsskoli@grindavik.is

Tilkynningar

>> Tilkynna skal forföll nemenda í síma 420 1180 eða með því að smella hér.

Torg fyrir innakstur
Athygli er vakin á því að þegar börnum er ekið í Hópsskóla er sérstakt snúningstorg fyrir bílana. Þar er ætlast til að börnunum sé hleypt úr og svo geta bílstjórar haldið áfram leið sinni. Ef allir fara eftir þessu ætti umferðin við skólann að ganga vel á morgnana.

Umsjónarmaður Hópsskóla
Umsjónarmaður Hópsskóla er Sveinbjörn Jónsson. Hann er það sem í daglegu tali kallast húsvörður! Sími Sveinbjarnar er 660 7327.