
Samstarf hefur um árabil verið á milli skólans og Tónlistarskóla Grindavíkur. Forskólakennsla Tónlistarskólans fer fram í skólanum á skólatíma. Nemendur í 1. og 2. bekk fara út úr kennslustundum, hálfur bekkur í senn og fá tónlistarkennslu, sem kennari frá Tónlistarkennaranum, Inga Björk Runólfsdóttir sinnir. Frá haustinu 2009 hafa allir nemendur í 5. bekk fengið hljóðfærakynningu í Tónlistarskólanum. Skólaárinu er skipt í þrjár 8 vikna lotur og velja nemendur eitt hljóðfæri í hverri lotu. Þeir fara út úr kennslustund einu sinni í viku í litlum hópum til að æfa sig. Skólaárið 2011 - 2012 er boðið upp á trompet, básúnu, fiðlu, althorn, klarinett og söng.
Nemendur sem eru í tónlistarnámi fara út úr kennslustundum til að fara í Tónlistarskólann. Þetta þarf að gerast í samstarfi við kennara og foreldra og þurfa nemendur og foreldrar að sjá til þess að nemendur vinni upp það sem þeir missa af í skólanum. Þessir timar eru ,,róterandi", þ.e. nemendur mega ekki alltaf fara út úr sömu kennslustundunum og alls ekki þeim sem þeir standa illa í.





