Stuđningur

ART

Í skólanum er hluti sérkennslutíma nýttur í ART - þjálfun.
ART stendur fyrir Agression Replacement Training og er fast mótað uppeldis þjálfunar módel. ART kemur upphaflega frá USA og eru höfundar þessa módels þeir Arnold Goldstein, Barry Glick og John C. Gibbs. Þeir byggja ART-þjálfunina á ólíkum straumum og stefnum úr sálfræðinni.

Þjálfunin felst því að kenna leiðir til að leysa samskiptavanda (félagsfærni), tilfinningavanda (siðfræðileg rökfærsla ) og hegðunarvanda (sjálfstjórn). ART þjálfun hentar nemenum á öllum aldri. Þjálfunin fer þannig fram að tveir ART kennarar vinna saman með nemendahóp sem getur verið samsettur af nemendum úr mismunandi bekkjum eða sem er einn bekkur ( bekkjarart ).

Þrjár kennslustundir eru á viku hjá hverjum nemendahópi, einn tími í félagsfærni, einn í sjálfstjórn og einn í siðfræðilegri rökfærslu.

Í félagsfærni fá nemendur verkfæri í hendurnar til að leysa ýmiskonar aðstæður og læra hvað þeir gera í ákveðnum aðstæðum. Unnið er út frá hegðun nemanda.

Í sjálfstjórninni læra nemendur að þekkja tilfinningar sínar og læra leiðir til að koma í veg fyrir að missa stjórn á sjálfum sér. Unnið er út frá tilfinningum nemenda. Í siðfræðinni eru nemendur þjálfaðir í að greina rétt frá röngu. Unnið er í gegnum klípusögur og skotakort.

ART færniþjáflun hjálpar einstaklingum að læra leiðir til að eiga samskipti á þann hátt sem virka fyrir hann, bæði við fullorðna og jafnaldra. Með því að þjálfa færni í gegnum sýnikennslu og hlutverkaleik og búa til líklegar aðstæður í mismunandi umhverfi er einstaklingum gefnir meiri möguleikar á að nota færnina.
Þegar einstaklingur tileinkar sér færnina vel, mun það auka vellíðan viðkomandi, gera hann öruggari, sjálfstæðari og ánægðari.

Í skólanum eru 4 kennarar sem eru ART þjálfarara, þau eru Ásrún Kristinsdóttir, María Eir Magnúsdóttir, Garðar Páll Vignisson og Svava Agnarsdóttir.

 


 

Sérdeild - Námsver

• Í Grunnskóla Grindavíkur eru þrjú Námsver, eitt fyrir hvert stig þ.e. 1.-3.bekkur í Hópsskóla, 4.-6.bekkur (stofa 114), 7.-10.bekkur (stofa 112).
• Í Námsveri eru nemendur, sem vegna tiltekinna greiningarviðmiða eiga rétt á að vera þar.
• Í Námsverunum er lögð áhersla á kennslu í litlum hópum, þar sem allir nemendur eru með einstaklingsáætlun.
• Nemendur eru frá 2 - 7 tímum á dag í Námsveri ýmist í bóklegri eða verklegri kennslu.
• Í Námsveri er megináhersla á lestrarkennslu, íslensku, stærðfræði og félagsfærni. Mikilvægt er að nemendur velji með foreldrum hvaða áherslur þeir vilja hafa í námi sínu.
• Áhersla er á blöndun í Námsverunum, þar sem hver árgangur fær að bjóða til sín bekkjarfélögum 1x í viku.
• Félagsfærni og lífsleikni er stór þáttur í námsveri og fær hver nemandi námskeið í slíkri færni s.s. Cat-kassa, og ART.
• Kennarar og nemendur Námsvers meta vinnu nemenda í lok
• Áhersla er lögð á gott foreldrasamstarf með reglulegum fundum og tölvupósti.

Áhersla er á blöndun í Námsverunum, þar sem hver árgangur fær að bjóða til sín bekkjarfélögum 1x í viku.

Kennarar og nemendur Námsvers meta vinnu nemenda í lok hvers tíma.
Nemendur vinna í stuttum vinnulotum, við hæfi hvers og eins og fá síðan að fara í frjálsan leik í lok tíman. 
Félagsfærni og lífsleikni er stór þáttur í námsveri og fær hver nemandi námskeið í slíkri færni s.s. Cat-kassa, ART. Í Námsveri er megin áhersla á lestrarkennslu, íslensku, stærðfræði og félagsfærni. Mikilvægt er að nemendur velji með foreldrum hvaða áherslur þeir vilja hafa í námi sínu. Nemendur eru frá 2 - 7 tímum á dag í Námsveri ýmist í bóklegri eða verklegri kennslu.
Í Námsverunum er lögð áhersla á kennslu í litlum hópum, þar sem allir nemendur eru með einstaklingsáætlun. Í Námsveri eru nemendur, sem vegna tiltekinna greiningar -viðmiða eiga rétt á að vera þar.

 


 

Sérkennsla

Í grunnskólalögum er kveðið á um að skólinn skuli haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir hvers nemanda og stuðla að alhliða þroska hvers og eins. Samkvæmt lögum eiga allir nemendur rétt á námi við hæfi í grunnskólum og er sveitarfélögum skylt að sjá öllum nemendum fyrir viðeigandi kennslu. Með sérkennslu í Grunnskóla Grindavíkur er leitast við að leita leiða til að mæta þessu hlutverki á sem bestan hátt og gera námið sem skilvirkast.

Helstu markmið sérkennslu eru:

• að styrkja sjálfsmynd nemenda
• að nemendur fái kennslu í samræmi við þroska og getu
• að styrkja nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum

Tekið er mið af greiningu sérfræðinga og greinandi skimunar prófum, ábendingum ýmissa aðila, svo sem leikskólakennara, talmeinafræðings, kennara, deildarstjóra og foreldra þegar þörf á sérkennslu nemenda er metin. Að vori ræða sérkennarar við umsjónarkennara um stöðu nemenda og saman meta þeir þörf fyrir sérkennslu á komandi skólaári. Umsjónakennari sækir formlega um um sérkennslu. Sérkennslutímum er skipt milli nemenda/nemendahópa í samræmi við þarfir þeirra og sett er niður heildaráætlun úrræða. Endurskoðun fer fram nokkrum sinnum á ári.

Áhersla er lögð á sérkennslu í lestri sem er undirstöðu námsgrein alls náms og stærðfræði.

Kennslan fer ýmist fram inni í bekk viðkomandi, einstaklingslega eða í smærri hópum eftir því sem best þykir hverju sinni. Stundum er um styttri námskeið að ræða en í lok hvers námskeiðs er síðan þörfnin á áframhaldi sérkennslu metin. Sumir nemendur fá sérkennslu 1 - 2 kennslustundir daglega allt árið og þá er unnið út frá einstaklingsáætlun. Ávallt er haft samráð við foreldra um sérkennslu.
Gera verður þeim og nemandanum grein fyrir þeim markmiðum sem sett eru í sérkennslu og tilhögun hennar.

Umsjónarkennari ber í öllum tilvikum meginábyrgð á nemendum með sértækar námsþarfir eins og öðrum nemendum í bekknum.

Deildarstjóri sérkennslu er María Eir Magnúsdóttir.
Kennarar sem sinna sérkennslu eru: Garðar Páll Vignisson sérkennari, Ólöf Bolladóttir sérkennari,
Bryndís Hauksdóttir kennari, María Eir Magnúsdóttir kennari og Stefanía Ólafsdóttir kennari.

 


 

Skjól

Skjól er tímabundið úrræði fyrir nemendur í 4. - 7. bekk .
Skjólið á að gagnast nemendum:
• sem þurfa að ná tökum á ábyrgri hegðun og efla sjálfstjórn
• sem þurfa tækifæri til að vinna í rólegu umhverfi og litlum hópi

Markmiðið er:
• að hjálpa nemanda að ná tökum á ábyrgri hegðun og efla sjálfsstjórn
• að bjóða upp á kennslu einstaklingslega og /eða í litlum hópum
• að auka vellíðan og áhuga
• að efla sjálfstraust og öryggi
• að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð

Skjólið er opið alla virka daga, 12 stundir á viku. Áætlaður fjöldi nemenda í Skjóli hverju sinni eru 4. Umsjónarmaður metur stöðuna hverju sinni og í ljósi hennar er ákveðið að taka inn fleiri eða færri nemendur.

6 - 8 stundir eru fastir tímar þ.e. fyrirfram ákveðnir nemendur hafa aðgang að þeim í ákveðinn tíma. Sækja þarf um fyrir nemendur í fasta tíma til deildarstjóra sérkennslu og hann ásamt umsjónarkennara og umsjónarmanni Skjóls meta hvort orðið verður við umsókninni og hvenær viðkomandi einstaklingur síðan útskrifast.

6 - 8 stundir eru opnar þ.e. kennari getur hringt og óskað eftir því að senda nemanda í Skjól. Þetta er jákvæð ,,hvíld" í stuttan tíma ( oftast ein kennslustund ). Kennari sem þarf að senda nemanda í Skjólið hringir í 218 og óskar eftir að fá að senda nemanda. Kennari metur hvort nemanda sé treystandi til að fara sjálfur eða hvort hann þarf fylgd. Ef viðkomandi nemandi þarf fylgd gæti það verið kennari/stuðningsfulltrúi/deildarstjóri viðkomandi stigs sem fylgir honum. Nemendur sem koma í Skjólið taka með sér námsbækur og áætlun frá kennara.

Að tíma loknum fer nemandi í frímínútur, en ef umsjónarmaður Skjólsins eða kennari treystir nemandanum ekki til þess er viðkomandi nemandi áfram í Skjóli í frímínútnatíma, eða þar til lausn er fundin í samráði við deildarstjóra. Að loknum frímínútum fer nemandi í næsta tíma samkvæmt stundaskrá. Ef viðkomandi nemandi hefur brotið af sér og er ekki tilbúinn til að sækja hefðbundna kennslustund er úrræði fundið samkvæmt reglum og viðurlögum skólans ( sbr. samskipti og skólabragur ) í samráði við deildarstjóra yngsta - /miðstigs.

Við endurteknar komur í Skjól fer ákveðið vinnuferli í gang í samvinnu við deildarstjóra yngsta -/miðstigs.
Ef engir nemendur eru í Skjóli skipuleggur deildarstjóri sérkennslu vinnu umsjónarmanns Skjóls.

Umsjónarmaður Skjóls skráir hegðun, vinnu og ástand nemandans í Skjólinu í dagbók hans í Mentor.
Umsjónarmaður heldur einnig skráningu yfir fjölda nemenda sem sækja Skjólið hverju sinni ( kyn, bekkjardeild, ástæða komu) og skilar skýrslu í lok skólaárs til deildarstjóra sérkennslu.

Skjól opnun 2011 - 2012
Umsjón: Lovísa Hilmarsdóttir
Staður: 218. Sími: 218

  Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
10:15-10:55 X X X X
10:55-11:10          
11:10-11:50 X X X    
11:50-12:30          
12:30-13:10 X X X X X


 

Nýbúakennsla

Skipulag íslensku sem annars tungumáls tekur mið af aldri, þroska og þörfum nemenda á hverju stigi, þ.e. í 3.-4.bekk, 5.-7.bekk og 8.-10.bekk. Deildarstjóri sérkennslu hefur yfirumsjón með skipulaginu, í Hópsskóla sinna ýmsir kennarar kennslunni en í Grunnskólanum sinnir Kristín Eyþórsdóttir kennslunni og hún fer fram í sérútbúinni nýbúastofu.

Tímafjöldi í „íslensku sem öðru tungumáli" fyrir nemendur miðast við mat á stöðu nemendanna. Nýbúakennari ákveður í samráði við umsjónarkennara úr hvaða tímum nemandinn fer í „íslensku sem annað mál". Að öðru leyti fylgir nemandinn sínum bekk.

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG