Íţróttir og sund

Skipulag íþróttakennslu 2011-2012

Kennsla í íþróttum íþróttum og sundi fer fram í Íþróttamiðstöð Grindavíkur þar sem er 25 metra útisundlaug og íþróttasalur. Jafnframt er aðgengi að Hópinu, fjölnota íþróttahúsi.

Íþróttamiðstöðin er í þægilegu göngufæri fyrir yngstu nemendurna í Hópsskóla en nemendur í 4. til 10. bekk í grunnskólanum þurfa að ganga u.þ.b. 10-15 mínútur í íþróttamiðstöðina.

Sundlaug Grindavíkur er 25 x 12,5 m útisundlaug. Þarna eru tveir heitir pottar, annar með nuddi, barnalaug með svepp, rennibraut og fleira.

Íþróttahúsið er þar skammt frá en það var tekið í notkun 20. október 1985. Stærri salurinn er 900 m2 að stærð en minni salurinn er 140 m2. Fjórir búningsklefar eru í húsinu auk annars rýmis. 

Skammt frá skólanum er fjölnota íþróttahús, Hópið, sem var tekið í notkun haustið 2009. Þetta er glæsilegt hús sem aðallega er notað til knattspyrnuiðkunar en nýtist einnig í aðrar íþróttagreinar, fyrir göngur fyrir almenning og að sjálfsögðu sem skólamannvirki.

Reglur um íþróttafatnað:
Í 1. til 3. bekk eru allir í íþróttafötum (stuttbuxum og bol) og berfættir.
Í 4. til 10. bekk eiga allir að vera í innanhússíþróttaskóm og íþróttafötum (stuttbuxum og bol).
Allir eiga að fara í sturtu eftir leikfimitíma.

Reglur um sundfatnað:
Sjá nánar hér.

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG