Skólasetning/skólaslit

Skólasetning

Skólasetning er þrískipt, 4., 5. og 6. bekkur mætir kl. 09:00 á sal skólans, 2. og 3. bekkur kl. 10:30 á sal Hópsskóla. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum.

Skólasetning fer þannig fram að nemedur byrja á því að fara á sal stutta stund þar sem skólastjóri býður nemendur velkoma og þá sérstaklega nýja aðflutta nemendur. Skólastjóri kynnir þá og segir í hvaða bekki þeir fara. Hann fer m.a. yfir nýjungar sem kunna að verða í skólastarfi vetrarins og kynnir nýja kennara og starfsfólk. Að þessu lokinu fer hver kennari með sinn bekk í stofu sína og afhendir stundaskrár og innkaupalista og ræðir starfið framundan. Kennsla hefst síðan næsta dag samkvæmt stundaskrá.

Skólasetingardaginn mæta nemendur í 1. og 7., 8., 9. 10. bekk einnig í skólann en þeir mæta til viðtals við umsjónarkennara sína ásamt foreldrum. Til þessara viðtala er boðað með bréfi. Þar sem skólastjóri hefur ekki tækifæri til að hitta þessa nemendur á skólasetningardegi fer skólastjóri í heimsókn í bekkina til þeirra og spjallar við þá á fyrstu skóladögunum.

Skólaslit

Skólaslit eru þrískipt og fara fram á sal skólanna. 1.- 3. bekkur er með skólaslit kl. 09:00 að morgni í Hópsskóla. 4. - 6. bekkur kl. 11:00 og 7.- 10. bekkur kl. 16:00 (kl. 13.00 ef föstud.).

Skólaslit hjá 1.- 3. bekk og 4. - 6. bekk fara þannig fram að byrjað er á sal , deildarstjórar sjá um þessar athafnir, fara stuttlega yfir starf vetrarins hjá stiginu, fá tónlistaratriði frá tónlistarskólanum og / eða upplestur á ljóðum. Skólastjóri sér um veitingu viðurkenninga og segir nokkur orð. Gert er ráða fyrir að athöfnin á sal taki ekki meira en 20 mínútur. Stefnt skal að því að gera skólaslitin lífleg og skemmtileg. Að athöfn lokinni fer hver bekkur með
umsjónarkennara í sína stofu, þar sem þau eiga saman stutta stund og fá afhentan vitnisburð.

Skólaslit hjá elsta stiginu fara þannig fram að skólastjóri er með yfirlitsræðu um skólastarfið almennt, deildarstjóri fer yfir starfið í 7. - 10. bekk, veitt eru verðlaun og viðurkenningar, fulltrúi 10. bekkinga flytur ávarp og tónlistaratriði eru flutt. Hápunktur athafnarinnar er útskrift 10. bekkinga sem skólastjóri og umsjónakennarar 10. bekkja sjá um. Að athöfn lokinni er 10. bekkingum, foreldrum þeirra og starfsfólki skólans boðið til kaffisamsætis í skólanum. Gert er ráð fyrir að skólaslitin taki ekki meira en 1 klukkustund.

Viðurkenningar á skólaslitum

• Sá bekkur sem er með hlutfallslega bestu mætingu í Víðavangshlaupi skólans á sumardaginn fyrsta hlýtur bikar sem afhentur er við skólaslit og þá á viðeigandi skólaslitum hverju sinni.

Unglingastig:
• Enskubikar - Penistonebikarinn, gefinn af vinarbæ okkar Penistone á Englandi, farandbikar. Lítill eignarbikar er einnig veittur. Hann hlýtur sá sem bestu er í ensku í 10.bekk. Sé valið sérlega erfitt, velja þann sem betri er, hinn gæti fengið bókarverðlaun frá skólanum.
• Dönskuverðlaun frá Danska sendiráðinu á Íslandi. Sá sem bestur er í dönsku í 10.bekk. Sé valið sérlega erfitt, velja þann sem betri er, hinn gæti fengið bókarverðlaun frá skólanum.
• Íþróttabikarar frá UMFG (stelpur/strákar), UMFG sér um að kaupa eignarskildi sem afhendast með.
• Besti árangur á grunnskólaprófi.
• Besti árangur í 8. - 10. bekk ( 1. ,2. og 3. besti árangur)
• Ef ástæða þykir til er verðlaunað fyrir eitthvað sérstakt, gæti verið sérstök vinnusemi, sérstakar framfarir, stundvísi eða eitthvað enn annað.  

Miðstig:
• Besti árangur á miðstigi (1., 2. og 3.besti árangur.
• Textílverðlaun, sem Kvenfélag Grindavíkur veitir.
• Tæknimenntarverðlaun, sem Lionsklúbbur Grindavíkur veitir.
• Ef ástæða þykir til er verðlaunað fyrir eitthvað sérstakt, gæti verið sérstök vinnusemi, sérstakar framfarir, stundvísi eða eitthvað enn annað.  

 

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG