Skólastjórn/skipurit

Skólastjóri er yfirmaður skólans og ber ábyrgð á starfinu sem þar fer fram og er aðstoðarskólatjóri staðgengill hans. Auk þeirra eru við skólann fjórir deildarstjórar, einn í 1. -3. bekk, annar í 4. - 6.bekk auk sérdeildar, sá þriðji í 7. - 10.bekk. Auk þeirra er deildarstjóri sérkennslu sem jafnframt er yfirmaður stuðningsfulltrúa við skólann. Deildarstjórar eru næstu yfirmenn kennara í sinni deild, stjórna þar daglegu starfi og hafa faglega forystu.
Skólastjórn hittist á reglulegum fundum einu sinni í viku. Sjá skipurit og gátlista um verkaskiptingu skólastjórnenda.

Skólastjórn Grunnskóla Grindavíkur frá haustinu 2011 skipa:
• Pálmi Hafþór Ingólfsson skólastjóri.

• Ásrún Kristinsdóttir deildarstjóri í Hópsskóla, 1. - 3. bekk, staðgengill skólastjóra.

• Kristín Mogensen deildarstjóri 4. - 6. bekk og námsvers.

• Ægir Viktorsson deildarstjóri 7. - 10. bekk.

• María Eir Magnúsdóttir deildarstjóri sérkennslu, umsjónarmaður stuðningsfulltrúa.


Skrifstofa skólans er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 07:45 til kl. 16:00 og föstudaga kl. 07:45 til 15:00.

Skólaritari sér um afgreiðslu ýmis konar, tekur við tilkynningum um forföll (símleiðis og í gegnum tölvu og kemur þeim til skila til kennara. Þurfi kennarar að senda nemendur eftir einhverju á skrifstofuna er gott að hringja til ritara á undan og láta hann vita.

Ritari er ársráðinn og notar sumarið gjarnan til þess að ljósrita námsefni, sem deildastjórar, sérstaklega á yngsta stiginu hafa falið honum.

Skólaritari sér um að skrá nemendur í skólann ( setja í námshópa/bekki í samráði við) og halda utan um upplýsingar í Mentor og uppfæra þær að vori.

 

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG