Siđareglur kennara

Siðareglur fyrir alla kennara innan Kennarasambands Íslands


Á 2. þingi Kennarasambands Íslands voru í fyrsta sinn samþykkta siðareglur fyrir alla kennara innan sambandsins. Umræður um setningu siðareglna hafa staðið í um það bil áratug en leikskólakennarar hafa haft slíkar reglur síðan 1991.
Reglurnar eru settar í þeim tilgangi að efla fagmennsku kennara og styrkja fagvitund þeirra. Þær eru kennurum til leiðbeiningar í starfi. Gert er ráð fyrir að þær verði endurskoðaðar reglulega.

Siðareglur kennara eru í 13 liðum:

1. Kennarar vinna að því að mennta nemendur og stuðla að alhliða þroska þeirra með fræðslu, uppeldi og þjálfun.
2. Kennurum ber að virða réttindi nemenda og hafa hagsmuni þeirra að leiðarljósi, efla sjálfsmynd þeirra og sýna sérhverjum einstaklingi virðingu, áhuga og umhyggju.
3. Kennurum ber að hafa jafnrétti allra nemenda að leiðarljósi í skólastarfi. Kennarar eiga að vinna gegn fordómum og mega ekki mismuna nemendum, til dæmis vegna kyns, þjóðernis eða trúarbragða.
4. Kennarar skulu leitast við að skapa góðan starfsanda, réttlárar starf- og umgengnisreglur og hvetjandi námsumhverfi.
5. Kennarar leitast við að vekja nemendum sínum virðingu fyrir umhverfi sínu og menningarlegum verðmætum.
6. Kennurum ber að viðhalda starfshæfni sinni, auka hana og fylgjast með nýjungum og umbótum á sviði skólamála.
7. Kennurum ber að hafa samvinnu við forráðamenn eftir þörfum og gæta þess að upplýsingar sem þeir veita forráðamönnum séu áreiðanlegar og réttar.
8. Kennarar skulu virða ákvörðunarrétt forráðamenna ósjálfráða nemenda og hafa ekki samband um málefni nemanda við sérfræðinga utan viðkomandi skóla nema slíkt sé óhjákvæmilegt til að tryggja velferð og rétt barnsins.
9. Kennurum ber að gæta trúnaðar við nemendur.
10. Kennurum ver að gæta þagmælsku um einkamál nemenda og forráðamanna þeirra sem þeir fá vitneskju um í starfi.
11. Kennarar skulu gæta heiður og hagsmuna kennarastéttarinnar.
12. Kennurum ber að vinna saman á faglegan hátt, taka þátt í að marka stefnu og móta daglegt starf í skólanum.
13. Kennurum ber að sýna hver öðrum fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu.

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG