Skólasagan

Það var presturinn og framfaramaðurinn Oddur V. Gíslason sem átti hlut í máli þegar skólastarf hófst í Grindavík. Árið 1887 hlutaðist hann til um að útgerðamenn og sjómenn gæfu hlut í afla til að stuðla að skólastarfi og menntun í Grindavík. Fengust fyrir það 120 kr. Nokkuð vantaði upp á að það dygði fyrir skólahaldi. Brá hann á það ráð að rita hinum Háu Stiftsyfirvöldum að fá jafnmikinn styrk á móti og var það samþykkt.

Ráðinn var Realstúdent Pétur Guðmundsson til starfans og hófst eiginleg skólakennsla þann 2. október 1888. Til að byrja með var kennt á þremur stöðum, Stað, Garðhúsum og á Hrauni, ein vika í senn á hverjum stað. Til samanburðar má nefna að skólaárið var samtals 18 vikur miðað við 38 vikur sem það er í dag.

Eins og gefur að skilja gekk ekki til lengdar að hafa húsnæðismál í þessum farvegi. Fyrsta skólahúsnæði var reist árið 1904 að Víkurbraut 11. Það var reyndar einnig samkomuhús og gekk til að byrja með undir nafninu Templarinn en seinna var það kallað Mánaborg og gegndi ýmsum hlutverkum.

Annar áfangi var tekinn í notkun árið 1913. Það var í húsnæði við Víkurbraut. Það var þó ekki fyrr en árið 1948 sem skólinn kemst í það húsnæði sem hann er enn í að hluta. Það var glæsileg bygging með íþróttahúsi áföstu við skólann. Þótti það mikið framfaraskref. Bæjarbúar voru þá um 500 manns sem er svipaður fjöldi og mest hefur verið í skólanum á seinni tímum.

Þegar skólinn var vígður voru nemendur 86 og kennt var í fjórum deildum. Ein var unglingadeild. Smám saman fjölgaði deildum og árið 1964 voru þær orðnar 7 þ.e. ein deild fyrir hvern árgang í skólanum. Þegar grunnskólalögunum var breytt árið 1974 var nafninu breytt úr Barnaskóla Grindavíkur í Grunnskóla Grindavíkur og eftir að skólaskylda var gerð að 10 árum var kennt í 10 deildum í skólanum.

Húsnæðið við Skólabraut og seinna Ásabraut hefur tekið breytingum í gegnum tíðina. Fyrst var reist ný álma við skólann til austurs og var hún tekin í notkun árið 1970. Næsta stækkun var ofan á þá álmu og var sú bygging tekin í notkun árið 1987. Síðasti áfangi var síðan tekin í notkun árið 2000 og er skólinn síðan í núverandi mynd. Reyndar var strax þá um haustið ljóst að skólinn var of lítill og var það leyst með bráðabirgðahúsnæði við skólann með tveimur kennslustofum og tveimur árum seinna með tveimur kennslustofum til viðbótar.

Var það úr að tekin var ákvörðun að ráðast í að reisa nýtt húsnæði frá grunni. Var þeirri byggingu valinn staður í nýju Hópshverfi sem þá var að byggjast upp. Hópsskóli tók síðan til starfa í janúar 2010 sem sjálfstæð eining en strax um haustið var tekin ákvörðun að skólarnir tveir myndu starfa undir sama nafni, Grunnskóli Grindavíkur.

Í dag eru 448 nemendur við skólana í 24 bekkjardeildum, 39 kennarar, 4 deildarstjórar,skólastjóri og aðstoðarskólastjóri.

1. bekkur í unglingaskóla Grindavíkur, 1972-1973:
Kennari: Bogi Hallgrímsson. Efsta röð frá vinstri: Jens Sigurðsson, Sigurþór Ólafsson, Ragnar Eðvarðsson, Júlíus Pétur Ingólfsson, Sigurbjörn Guðmundsson, Gunnlaugur Friðbjarnarson, Kristinn Kárason, Pétur H. Pálsson, Eyjólfur Þór Guðlaugsson, Sigurgeir Bjarnason, Þorsteinn Símonarson, Sveinn Árnason, Magnús Þórarinsson, Steingrímur Pétursson. Miðröð frá vinstri Ásta Sveinsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Steinunn Gestsdóttir, Elísabet Sigurðardóttir, Kristín Ólafsdóttir, Kristín Vilborg Helgadóttir, Hafdís Helgadóttir, Kristín Eðvarðsdóttir. Neðsta röð frá vinstri: Pétur Hauksson, Hörður Jónsson, Matthildur Níelsdóttir, Freyja Friðbjarnardóttir, Ólína Guðjónsdóttir, Guðfinna Bogadóttir, Gísli Willardsson, Hermann Waldorff

Skólastjóri og kennararlið Grunnskólans 1977:
Standandi frá vinstri: Jón Gröndal, Eyjólfur Ólafsson, Gunnlaugur Dan Ólafsson, Ragnar Ágústsson, Líndal , Magnús Valgeirsson, Björn Birgisson, Ólafur Rúnar Þorvarðarsson, Halldór Ingvason, Guðni Ölversson, Sigurður Barði. Sitjandi: Stefanía Ólafsdóttir, Kristín Eyþórsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Inga Erlingsdóttir, Bogi Hallgrímsson, skólastjóri, Margrét Gunnarsdóttir, Vilborg Guðjónsdóttir og Sigrún R. Guðmundsdóttir.

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG