Nemendafélag

Við grunnskóla skal starfa nemendafélag og er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun þess.


Nemendafélag vinnur m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda og skal skólastjóri sjá til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum.

Nemendafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð skv. 2. mgr. 8. gr.

Nemendafélag Grunnskóla Grindavíkur - Stjórn 2011-2012:

• Lárus Guðmundsson formaður 10.b.
• Anton Ingi Rúnarsson varaformaður 10.b.
• Hinrik Guðbjartsson 10.b.
• Páll Erlingur Pálsson 10.b.
• Íris Ósk Hallgrímsdóttir 9.b.
• Marinó Helgason 9.b.
• Katla Þormarsdóttir 8.b.
• Guðný Guðbjartsdóttir 8.b.
• Hilmar McShane 7.b.

Nemendafélag Grunnskóla Grindavíkur starfar skv 10.gr laga um Grunnskóla.

10. gr.
Nemendafélag.

Við grunnskóla skal starfa nemendafélag og er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun þess. Nemendafélag vinnur m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda og skal skólastjóri sjá til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum.
Nemendafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð skv. 2. mgr. 8. gr.

Markmið nemendafélagsins í skólanum er að þar geti nemendur unnið að félags-, hagsmuna og velferðamálum nemenda og:
1. þroskist félagslega
2. verði hæfari að lifa og starfa í lýðræðisþjóðfélagi
3. geti tjáð skoðanir sínar með eðlilegum hætti og unnið með öðrum
að þroskandi viðfangsefnum.
4. Árgangafulltrúar komi skoðunum nemenda á framfæri á fundum þó svo að þær stangist á við eigin skoðanir.


Kosningar:

Hver árgangur í sjötta til níunda bekkja, kýs sér fulltrúa í nemendafélagið að vori.
Nauðsynlegt er talið að hver bekkur hafi mann í nemendafélaginu þannig að bekkjarfulltrúarnir séu tengiliðir bekkjanna við nemendaráðið, láti bekkinn fylgjast með hvað sé verið að gera og hvað sé framundan, einnig að taka við hugmyndum og/eða athugasemdum vegna starfseminnar. Formaður og varaformaður koma úr röðum níunda bekkja og fá allir árgangar að kjósa um formann nemendaráðsins.

Fundir nemendafélagsins eru vikulega þar sem farið er yfir þau verkefni sem þarf að sinna. Ritari er kosinn á fyrsta fundi að hausti og er rituð fundargerð á hverjum fundi.

Umsjónarmaður nemendafélagsins kemur úr röðum kennara, hans hlutverk er að halda utan um starfsemina, stjórna fundum, skipuleggja viðburði, kenna fundarsköp og lýðræðisleg vinnubrögð.

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG