Tilgangur:
Að tekið verði á móti nýjum nemendum, þannig að þeirra fyrstu kynni af skólanum geti veitt þeim tilfinningu fyrir öryggi og vellíðan.
Ábyrgð og verklag:
Í fyrstu koma nemendur ásamt foreldrum (báðum) í skólann og hitta deildarstjóra og umsjónarkennara á fyrirfram ákveðnum tíma. Þeir mæta síðan í kennslu næsta skóladag. Nýir nemendur sem byrja í skólanum að hausti og foreldrar þeirra fá kynningu á sérstökum fundi áður en skóli hefst.
Skólaritari:
• skráir nemendur á sérstakt innritunarblað
• kemur upplýsingum (ljósriti af innritun) til viðkomandi deildarstjóra, námsráðgjafa,skólahjúkrunarfræðings og tölvuumsjónarmanns ef nemandinn er í 7.-10.bekk.
Deildarstjóri:
• tekur ákvörðun um bekkjardeild og tilkynnir það umsjónarkennara
• kynnir umsjónarkennurum verklagsreglur um móttöku nýrra nemenda
• kynnir umsjónarkennara öll gögn er varða nýja nemendur
• boðar til fyrsta viðtals og kynnir nemanda/foreldra fyrir skólastjóra/ aðstoðarskólastjóra
• kynnir nemanda og foreldra fyrir umsjónarkennara
• tilkynnir kennurum og starfsfólki um að nýr nemandi hafi verið innritaður í skólann (sett á töflu - upplýsinganet skólans)
Umsjónarkennari:
• setur nemanda í námshópa
• afhendir stundaskrá, bekkjarnámskrá, bæklinginn Samskipti og skólabragur , upplýsingar um þjónustu tengda skólanum og lykilorð að Mentor
• kynnir nýjum nemanda aðstöðu skólans, ásamt íþrótta- og sundaðstöðu
• hefur samband við umsjónarmann skólans vegna húsgagna
• kannar stöðu nemandans, leitar eftir upplýsingum, ef hann telur þörf
• kynnir kennurum /sérgreinakennurum /starfsfólki um, ef um frávik er að ræða sem gera þarf sérstaka grein fyrir
• leitar eftir ráðgjöf fagstjóra í sérkennslu / sérkennslufulltrúa vegna nemanda með frávik
• kynnir nemandann fyrir bekknum og virkjar aðra nemendur í því að gera aðlögun hans jákvæða
• fylgist með líðan nemandans í skólanum (regluleg viðtöl fyrsta mánuðinn)
• sér um að nýir nemendur hitti námsráðgjafa ( 5.-10.bekk)
• hefur samráð við foreldra um líðan og gengi nemandans a.m.k. vikulega fyrsta mánuði.




