Skólahjúkrun

Heilbrigðisskoðanir:
Skólahjúkrunarfræðingar og læknar heilsugæslunnar hafa samvinnu um skoðanir.

6 ára börn:
Sjón og heyrn
Hæð og þyngd
Upplýsingar frá foreldrum
Viðtal við hjúkrunarfræðing
(bólusetningar ef þörf er á)

9 ára börn:
Hæð og þyngd
Sjón
Viðtal við hjúkrunarfræðing

12 ára börn:
Hæð og þyngd
Sjón og litaskyn
Viðtal við hjúkrunarfræðing
Bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum (MMR), ein sprauta

14 ára börn:
Sjón og heyrn
Hæð og þyngd

Heilsugæsla Grunnskóla Grindavíkur er á vegum heilsugæslustöðvarinnar í Grindavík.
Sími: 422-0750.

Hjúkrunarfræðingur: 8600172

Sólbjörg Guðný Sólversdóttir er skólahjúkrunarfræðingur.
Viðvera hjúkrunarfræðingsins er:
• mánudaga kl. 8.00 - 13.00
• þriðjudaga kl. 8.00 - 13.00
• miðvikudaga kl. 8.00 - 13.00
• fimmtudaga kl. 8.00 - 13.00

Hjúkrunarfræðingurinn er til skiptis í Hópsskóla og Grunnskóla eftir verkefnum.

Meginmarkmið skólaheilsugæslu er að börnin fái að vaxa, þroskast og stunda sitt nám við bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á. Skólahjúkrunarfræðingar vinna í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að skólabarninu.

Skólahjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á skólahjúkrun í þeim skóla sem hann starfar við.

Hann vinnur samkvæmt lögum, reglugerðum og tilmælum sem varða starf hans.

Skólahjúkrunarfræðingar eru bundnir þagnarskyldu.

Viðtal við hjúkrunarfræðing
Bólusetning gegn mænusótt, stífkrampa, barnaveiki og kíghósta, ein sprauta.

Skólahjúkrunarfræðingar fylgjast með því að börn hafi fengið þær bólusetningar sem reglur segja til um. Ef bólusetningar barna eru ekki fullnægjandi er haft samband við foreldra og bætt úr því í samráði við þá.

Fræðsla, heilbrigðishvatning og forvarnir
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Hann nýtir þau tækifæri sem gefast til að fræða börnin og vekja þau til umhugsunar og ábyrgðar á eigin heilsu. Foreldrar eru hvattir til að leita eftir ráðgjöf hjúkrunarfræðings varðandi heilbrigði barns síns eftir þörfum.

Tannvernd
Flúorskolun fer fram í skólanum 4 sinnum á skólárinu, 3 daga í röð og stendur til boða nemendum í 1., 7. og 10. bekk. Foreldrar eiga að velja tannlækni fyrir börn sín og fara með þau í reglulegt eftirlit.

Slys og veikindi
Ef bráð slys eða veikindi ber að höndum er nauðsynlegt að geta náð sambandi við foreldra/ forráðamenn. Þeir eru því beðnir að sjá til þess að símanúmer heima og á vinnustað séu ávallt til staðar í skólanum. Ef barnið þarf að fara á heilsugæslustöð eða á slysadeild þarf foreldri eða forráðamaður að fylgja barninu.
Ef barn er með alvarlegan sjúkdóm sem getur stefnt heilsu / lífi í bráða hættu er nauðsynlegt að hjúkrunarfræðingar viti af því. Hér er átt við sjúkdóma eins og til dæmis sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og blæðingarsjúkdóma.

Að gefnu tilefni er það tekið fram að það er ekki hluti af starfi skólahjúkrunarfræðinga að skoða, meta og meðhöndla áverka sem verða utan skólans.

Ef áföll eða veikindi verða í fjölskyldu barnsins er æskilegt að láta hjúkrunarfræðing, umsjónarkennara og skólastjórnendur vita. Áfallaráð er starfandi í skólanum.

Lyfjagjafir
Ef barn þarf að taka lyf á skólatíma ber foreldrum / forráðamönnum að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing, þar sem hann skipuleggur lyfjagjafir á skólatíma.

Lús og aðrar óværur
Lúsin er lífsseig og skýtur upp kollinum öðru hverju í öllum skólum. Til þess að ráða niðurlögum hennar er nauðsynlegt að láta vita af henni. Verði lúsar vart hjá barni er rétt að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing og leita ráða varðandi meðferð. Hjúkrunarfræðingar halda skrá yfir lúsatilfelli og sjá um að senda tilkynningar til þeirra er málið varðar, til að hægt sé að leita í þeim. Trúnaðar varðandi nöfn er gætt. Foreldrar / forráðamenn eru einnig beðnir að láta þá sem barnið umgengst mest vita.
Svipaðar reglur gilda um njálg og kláðamaur.

Svefntími og útivistartími
Rétt er að geta þess að hæfileg hreyfing, hollt mataræði, langur og reglulegur svefn eru grundvallaratriði fyrir vellíðan og góðum námsárangri barna.
Hæfilegur svefntími:
5 - 8 ára börn 10 - 12 klst. á sólarhring
9 - 12 ára börn 10 - 11 klst. á sólarhring
13 - 15 ára börn 9 - 10 klst. á sólarhring

Útivistartími:
Börn yngri en 12 ára mega ekki vera úti eftir kl. 20 frá 1. september til 1. maí nema í fylgd með fullorðnum og ekki eftir kl. 22 frá 1. maí til 1. sept.
Börn yngri en 15 ára mega ekki vera úti eftir kl. 22 frá 1. september til 1. maí nema í fylgd með fullorðnum og ekki eftir kl. 24 frá 1. maí til 1. september. Undantekning frá þessari reglu ef um er að ræða samkomu á vegum skóla eða félagsmiðstöðvar.

 

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG