Mćtingar / hegđunareinkunn

Hver nemandi byrjar með 10,0 í mætingar/hegðunareinkunn í upphafi hverrar annar. Fjarvistir, brottrekstur úr kennslustundum, að koma seint eða ámælisverð framkoma utan eða innan kennslustofu koma síðan til frádráttar. Þau stig sem eftir eru í lok anna teljast mætingar/hegðunareinkunn og færast á vitnisburðarblöð. 

Þessi einkunn er sérstök einkunn óháð frammistöðu í einstökum námsgreinum.


(R) Brottrekstur úr kennslustund og ámælisverð framkoma:
Fyrir R sem fært er í bekkjarskrá kemur 1,0 til frádráttar. Ekki er nauðsynlegt að víkja nemanda úr kennslustund þótt R sé fært í bekkjarskrána, heldur er litið á það sem mælikvarða á hegðun nemanda. Þegar nemandi fær R skráð í fyrsta skipti skal viðkomandi kennari skrá það í handbók nemandans.
Alltaf skal láta umsjónarkennara vita ef um brottrekstur úr kennslustund er að ræða. Einnig skulu foreldrar/forráðamenn fá vitneskju um málið. Deildarstjóri skal alltaf fá skriflega tilkynningu um mál sem varða brottrekstur eða vítaverða framkomu nemenda.

(Ó) Óheimilar fjarvistir:
Fyrir fyrsta Ó kemur enginn frádráttur ef nemandi hefur sofið yfir sig í fyrsta tíma að morgni, en eftir það dragast 0,5 frá mætingar/hegðunareinkunn fyrir hvert skipti.
Ef nemandi er fjarverandi án leyfis í heilan dag, skal umsjónarkennari hans leita skýringa á því og meta síðan fjarveru hans til frádráttar, þó ekki meira en frádráttarreglur segja til um.

(S) Seinkomur:
Komi nemandi of seint í kennslustund skal færa S í bekkjarskrá.
Eftir fyrsta S kemur enginn frádráttur en eftir það dragast 0,2 frá fyrir hvert skipti.

Fari nemandi niður fyrir 8,0 í mætingar/hegðunareinkunn skal umsjónarkennari tilkynna það foreldri/forráðamanni hans. Fari nemandi niður fyrir 7,0 skal nemandi ásamt foreldri/forráðamanni koma til viðtals við umsjónarkennara.
**
Ef nemandi er kominn niður fyrir 5,0 er mál hans komið á það stig að það verður tekið til sérstakrar umfjöllunar hjá deildarstjóra í samráði við foreldra/forráðamann. Ef sú umfjöllun skilar ekki tilætluðum árangri, mun málið verða sent skólastjórn/skólanefnd til úrlausnar.
**
Nemandi sem farið hefur niður fyrir 5,0 í mætingar/hegðunareinkunn á kost á því að vinna sig upp í þá tölu, en þó með ákveðnum skilyrðum. Ef mæting og hegðun er óaðfinnanleg í viku getur nemandinn unnið sér inn plús 0,5 punkta.
**
Umsjónarkennari skal gefa reglulega upp stöðu nemenda í mætingar/hegðunareinkunn í handbók þeirra.
Ef nemandi gerir ekki athugasemdir við færslur í handbókina strax, skoðast þær samþykktar.

 

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG