Í 6. gr. laga um grunnskóla frá árinu 2008 stendur þetta um Skólanefndir:
Í hverju sveitarfélagi skal í umboði sveitarstjórnar vera skólanefnd sem fer með málefni grunnskóla eftir því sem lög og reglugerðir ákveða og sveitarstjórn eða sveitarstjórnir kunna að fela henni.
Meginhlutverk skólanefndar er sem hér segir:
a. að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem rétt eiga á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu,
b. að staðfesta starfsáætlun skóla ár hvert og skólanámskrá einstakra skóla,
c. að fylgjast með framkvæmd náms og kennslu í sveitarfélaginu og gerð skólanámskrár og gera tillögur til skólastjóra og/eða sveitarstjórnar um umbætur í skólastarfi,
d. að fylgjast með og stuðla að því að nemendum og skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu,
e. að sjá til þess að jafnan sé fyrir hendi viðeigandi húsnæði fyrir kennslu og annar aðbúnaður, þ.m.t. útivistar- og leiksvæði nemenda,
f. að hafa eftirlit með að ákvæði laga og reglugerða séu uppfyllt og gera tillögur til sveitarstjórnar um úrbætur,
g. að stuðla að tengslum og samstarfi leikskóla og grunnskóla annars vegar og grunnskóla og framhaldsskóla hins vegar.
Skólanefnd skal kosin af hlutaðeigandi sveitarstjórn í upphafi hvers kjörtímabils. Um kosningu í skólanefnd og starfshætti fer samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykktum viðkomandi sveitarfélags. Varamenn í skólanefndum skulu vera jafnmargir aðalmönnum og kosnir á sama hátt.
Skólastjórar, grunnskólakennarar og foreldrar í sveitarfélagi kjósa hver úr sínum hópi aðal- og varamann til setu á skólanefndarfundum með málfrelsi og tillögurétt.
Þegar skólanefnd fær til meðferðar kærumál samkvæmt ákvæðum laga þessara gilda um meðferð kærumálsins reglur stjórnsýslulaga. Um sérstakt hæfi nefndarmanna og annarra fulltrúa sem rétt hafa til að sitja fundi nefndarinnar gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga.
Í fræðslunefnd Grindavíkurbæjar sitja eftirtaldir:
• Klara Halldórsdóttir, formaður
• Eva Björg Sigurðardóttir
• Guðrún Atladóttir
• Stefanía Stefánsdóttir
• Þórunn Svava Róbertsdóttir
Í nefndinni eiga einnig sæti fulltrúi skólastjórnenda, fulltrúi stjórnenda leikskóla, fulltrúi skólastjórnenda Tónlistarskólans, fulltrúi kennara, fulltrúi barna við grunnskólann og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.




