Forföll

Forráðamenn tilkynna forföll nemenda fyrir upphaf skóladags , til ritara skólans í síma 420-1150 eða á heimasíðu skólans http://www.grindavik.is/fjarvistun

Ef nemandi þarf að fá leyfi hluta úr degi eða einn skóladag skal haft samband við skrifstofu skólans. Ef um leyfi þrjá daga eða meira skal sækja um það á skrifstofu skólans. Eyðublöð eru á heimasíðu skólans http://www.grindavik.is/grunnskoli/eydublod

Það er á ábyrgð foreldra/forráðamanna að sjá til þess að nemendur vinni upp það námsefni sem þeir missa af í lengra leyfi. Ef óskað er eftir undanþágu frá skyldunámi í námsgrein er sótt um það skriflega til skólastjóra sem leggur umsókn fyrir nemendaverndarráð til umsagnar.

SKÓLASLIT
Skólaslit verða föstudaginn 1. júní sem hér segir:
1., 2. og 3.bekkur í Hópsskóla kl. 9.00.
4., 5. og 6. bekkur í grunnskólanum kl. 10.30.
7. og 8. bekkur í grunnskólanum kl. 12.00. 9. og 10. bekkur í grunnskólanum kl. 13.30
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG