Foreldrar

 

Í grunnskólalögum nr. 91/2008 segir: "starfsmönnum skóla er skylt að efla samstarf skóla
og heimila, m.a. með því að miðla fræðslu um skólamál til foreldra og veita upplýsingar um
starfið í skólanum".

Samskiptadagar eru tvisvar á ári, þrír dagar í senn, um miðjan nóvember og um miðjan febrúar. Þá mæta nemendur ásamt foreldrum/forráðamönnum sínum í skólann á fyrirfram gefnum tíma einhvern tíma á milli kl. 16.00 og 18.30. Þessa tilhögun á samskiptadögum völdu foreldrar í könnun fyrir allmörgum árum síðan. Á þessum dögum eiga allir kennarar skólans að vera í skólanum og tilbúnir til viðtals við foreldra og nemendur.

FJÖLDI NEMENDA
Í byrjun skólaársins voru 468 nemendur í skólanum. Stúlkur í skólanum eru 216 og piltarnir eru 252. Skipting nemenda í árganga er með eftirfarandi hætti: 1.-3. bekkur í Hópsskóla 140 nemendur 65 stúlkur og 75 drengir. Í Grunnskólanum er 4.-10.bekkur alls 328 nemendur 151 stúlka og 177 drengir.
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG