STJÓRN FORELDRAFÉLAGS GRUNNSKÓLA GRINDAVÍKUR:
| Formaður Ingvar Gunnlaugsson ingvar@grindavik.is |
Meðstjórnandi Alda Agnes Gylfadóttir |
Gjaldkeri |
Meðstjórnandi |
| Meðstjórnandi Þórunn Alda Gylfadóttir |
Meðstjórnandi |
Meðstjórnandi Jóhannes Gunnar Sveinsson |
Tengiliður við skólann Magnea Böðvarsdóttir magneab@centrum.is |
Samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 91 frá 2008 stendur í 9. grein að við grunnskóla skuli starfa foreldrafélag. Skólastjóri er ábyrgur fyrir stofnun þess og sér til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum. Hlutverk foreldrafélags er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð.
Lög foreldra- og kennarafélagsins (Samþykkt 2. nóv. 2011)
FUNDARGERÐIR:
Fundargerð aðalfundar 2. nóvember 2011
Fundargerð stjórnarfundar 22. nóvember 2010
Fundargerð stjórnarfundar 3. nóvember 2008
Fundargerð stjórnarfundar 29. september 2008
Fundargerð stjórnarfundar 30. janúar 2008
Fundargerð aðalfundar 20. nóvember 2007
Bćtum samskipti heimilis og skóla
Á dögunum bauð Foreldrafélag grunnskólans upp á foreldranámskeið í Hópsskóla með Helgu Margréti Guðmundsdóttur tómstunda- og félagsmálafræðingi. Helga Margrét er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og var áður starfsmaður Heimilis og skóla. Á námskeiðinu var farið yfir hlutverk skólans í nútíma samfélagi, samskipti foreldra við skólann og umfram allt líðan barna í skólanum. Þar er þáttur foreldra afgerandi eigi vel að takast til og samvinna milli heimila og skóla mikilvæg.
>> MEIRA
Áhugavert námskeiđ á vegum foreldrafélagsins
Foreldrafélag Grunnskólans minnir á námskeiðið fimmtudaginn 10. nóvember sem haldið er í Hópsskóla frá klukkan 20-22. Þetta námskeið er fyrir alla foreldra (ekki aðeins bekkjarfulltrúa) og eru aðrir bæjarbúar einnig velkomnir, foreldrar leikskólabarna og kennarar allra skólanna.
>> MEIRA
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur var haldinn 2. nóvember sl. í Hópsskóla. Þar bar hæst að ný lög félagsins voru samþykkt en þau má lesa hér. Þrír gengu úr stjórn að þessu sinni, þær Sæborg Reynisdóttir, Mínerva Gísladóttir og Björg Guðmundsdóttir.
>> MEIRA
Tillögur ađ nýrri reglugerđ fyrir Foreldrafélag Grunnskóla Grindavíkur
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur verður næsta miðvikudag 2. nóv. kl. 20:00 í sal Hópsskóla. Fyrir aðalfundinum liggur fyrir tillaga að nýrri reglugerð foreldrafélagsins sem lögð verður fram til samþykktar. Reglugerðin hefur verið lögð fram til kynningar fyrir aðalfundinn og má nálgast hana hér.
>> MEIRAAđalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur verður haldinn 2. nóvember 2011 klukkan 20:00 í sal Hópsskóla. Á fundinum verður farið yfir venjuleg aðalfundarstörf. Hvetjum við alla foreldra til að mæta.
>> MEIRA



