Starfsáætlun 2011-2012
Viðbragðsáætlun vegna áfalla
Viðbragðsáætlun vegna eineltis
Jafnréttisáætlun
Símenntunaráætlun
Viðbragðsáætlun almannavarna
Viðbrögð við hættuástandi
Starfsáætlun Grunnskóla Grindavíkur 2011-2012:
Samkvæmt 29 gr. grunnskólalaga ber hverjum grunnskóla að gefa út skólanámskrá og starfsáætlun. Skólastjóri er ábyrgur fyrir gerð þeirra og skal semja þær í samráði við kennara. Skólanámskrá er nánari útfærsla á Aðalnámskrá grunnskóla um markmið, inntak náms og námsmat, starfshætti og mat á árangri og gæðum skólastarfs. Skólanámskrá tekur mið af sérstöðu grunnskóla og aðstæðum og skal endurskoða reglulega.
Í árlegri starfsáætlun er m.a. gerð grein fyrir skóladagatali, þ.m.t. lengd jólaleyfis, páskaleyfis og annarra vetrarleyfa, starfsáætlun nemenda, skólareglum, stoðþjónustu, félagslífi og öðru því sem varðar starfsemi skólans ár hvert. Þar skal birta upplýsingar um starfslið skólans, stjórnkerfi, mögulegan stuðning fyrir nemendur af ýmsu tagi og almennar hagnýtar upplýsingar um skólahald hvers skólaár. Starfsáætlun skóla skal árlega lögð fyrir skólanefnd til staðfestingar sem staðfestir gildistöku hennar þegar ljóst er að hún hafi verið unnin í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá, kjarasamninga og ákvarðanir sveitastjórnar um fyrirkomulag skólahalds.
Áfallaráð:
* Skólastjóri
* Skólahjúkrunarfræðingur
* Námsráðgjafi
* Sóknarprestur
* Hlutaðeigandi deildarstjórar og kennarar
Hlutverk áfallaráðs:
* Að sjá um að nemendur fái viðeigandi aðstoð ef þeir verða fyrir áfalli.
* Að bera allar aðgerðir skólans undir viðkomandi foreldra/ starfsmann til samþykkis og hafa þá með í ráðum frá upphafi.
* Að hlúa að nemendum og starfsfólki skólans m.a. með því að gefa gaum að áfallastreitu og bjóða upp á hópavinnu eða einstaklingsviðtöl ef þörf er á.
* Að vera reiðubúið til að starfa allt árið, jafnt sumar sem í skólafríum yfir veturinn og á skólatíma.
* Að bjóða starfsfólki skólans reglulega (á tveggja til þriggja ára fresti) upp á námskeið í sálrænni skyndihjálp.
Eineltisteymi:
Í skólanum starfar hópur sem sameiginlega leitar leiða þegar eineltismál koma upp „eineltisteymi". Hlutverk teymisins er að taka til meðferðar mál, sem ekki hefur tekist að leysa á frumstigi hjá umsjónarkennara og deildarstjóra, og skilgreind hafa verið sem eineltismál. Teymið hefur umsjón með vinnu eineltismála innan skólans og veitir kennurum, nemendum og foreldrum leiðsögn. Í eineltisteymi Grunnskóla Grindavíkur eru:
Skólastjóri / deildarstjórar viðkomandi stigs
palmin@grindavik.is , aegir@grindavik.is, kristinm@grindavik.is , asrun@grindavik.is
Hjúkrunarfræðingur
Námsráðgjafi gudrun@grindavik.is
Félagsráðgjafi hildigunnur@grindavik.is
Skólastjóri kallar teymið saman.
Viðbragðsáætlun vegna eineltis
Jafnréttisáætlun:
Við í Grunnskóla Grindavíkur viljum koma á og viðhalda jafnrétti kynjanna og stuðla að því að hver einstaklingur verði metinn á eigin forsendum. Við virðum og nýtum þann auð sem fólgin er í fjölbreytileikanum. Starfsfólk á að hafa sömu möguleika og sama rétt óháð kyni innan síns verksviðs. Kynbundin mismunun er óheimil og er það stefna skólans að útrýma slíkum mismun.
Hlutverk jafnréttisráðs:
Í jafnréttisráði skal vera stjórnandi, fulltrúi kennara og fulltrúi annars starfsfólks.
Hlutverk jafnréttisteymis er að endurskoða og uppfæra árlega upplýsingar er varða hlutfall karla og kvenna, launaflokka (potta), yfirvinnu og aðra þætti er varða rétt starfsfólks. Umræða um jafnréttismál skulu tekin upp á starfsmannafundi hvert haust.
Símenntunaráætlun:
Helstu áherslur og markmið fyrir skólaárið 2011-2012
• Uppbyggingarstefnan
• How good is our school - vinna að innra mati skólans - Náms- og kynnisferð starfsfólks til Glasgow til að kynna sér það nánar
• Fjölbreyttir kennsluhættir
• Ljúka gerð heimanámsstefnu
• Lestur/lestrarkennsla - lestrarstefna
• Fjölsmiðja
• Stærðfræðikennsla á unglingastigi
• Comeniusarverkefnið ,, Let´s taste Europe"
Viðbragðsáætlun Almannavarna fyrir Grunnskóla Grindavíkur:
Viðbragðsáætlun þessi segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða í Grunnskóla Grindavíkur í samræmi við áætlun Almannavarna um viðbrögð við heimsútbreiðslu inflúensu.
Markmið viðbragðsáætlana skóla eru að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð allra skólastofnana sem og starfsmanna þeirra þegar til inflúensufaraldurs kemur.
Við gerð áætlunarinnar er meðal annars stuðst við lög um almannavarnir nr. 82/2008 og lög um sóttvarnir nr. 19/1997.
Áætlunin er í samræmi við Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu.
Ábyrgð á áætlun þessari er í höndum Páls Leós Jónssonar skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur. Áætlunin verður endurskoðuð á a.m.k. fimm ára fresti, en yfirfarin árlega t.d. hvað varðar boðleiðir, gátlista og starfssvæði skóla. Ef miklar breytingar verða á starfsemi skólans verður áætlunin þegar í stað endurskoðuð.
Viðbrögð við hættuástandi:
Hér er handbók um viðbrögð í Grunnskóla Grindavíkur við hættuástandi sem kann að skapast innan skólans við bruna, jarðskjálfta, fárviðri og sjávarflóðs.




