Félag eldri borgara

Félag eldri borgara í Grindavík er deild í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum (FES). Félagið sér um tvær skemmtanir á árinu; vorfagnað fyrir alla eldri borgara á Suðurnesjum og svo aðventugleði fyrir eldri borgara í Grindavík. Einnig er farið í skipulagðar ferðir.

Félagsstarf eldri borgara og öryrkja 2011-2012:

Fimmtudaginn 8. september var tekin í gagnið ný aðstaða fyrir eldri borgara í Grindavík. Aðstaðan er á neðri hæð í Víðihlíð og hefur hlotið nafnið Miðgarður. Umsjón með starfinu í Miðgarði hefur Stefanía Sigríður Jónsdóttir forstöðumaður Miðgarðs. Símanúmer í Miðgarði er 426 8014.
Alla virka daga er hægt að kíkja í heimsókn frá 8.00 til 16.00, fá kaffi, lesa blöðin, spjalla, tefla, frír aðgangur er að tölvum, ofl. Unnið er í því að koma upp billjardborði.
Eftirfarandi frístundastarf verður í boði fyrir eldri borgara (60+) og öryrkja í Grindavík á komandi haustmánuðum:
• Almenn handavinna hefst mánudaginn 12. september og verður á eftirtöldum tímum:
Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 er hægt að mæta í almenna handavinnu. Prjón, útsaum, hekla og fl. Athugið að leiðsögn verður ekki alltaf til staðar.
• Keramik verður á mánudögum milli kl. 09:00 og 12:00.
Postulín verður á þriðjudögum milli kl. 09:00 - 12:00 og 13:00 - 15:30.
• Á fimmtudögum í vetur milli kl. 13:00 - 16:00 verður boðið upp á hin ýmsu námskeið t.d. gler, leir ofl. og verður það auglýst nánar síðar.
• Áfram verður boðið upp á tíma í almennri líkamsrækt í Orkubúinu, Hafnargötu 28, og eru þeir tímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 09:30 - 11:00. Þessir tímar hafa verið mjög vinsælir og hafa allir gott af því að hreyfa sig og auka við þol og þrek, svo ekki sé minnst á betri andlega líðan. Umsjón með þessum tímum hefur Ásdís Sigurðardóttir íþróttakennari. Þess-ir tímar eru fyrir 67 ára og eldri auk öryrkja. Eru þeir sem hafa hug á því að mæta í þessa tíma beðnir um að hringja í Orkubúið í síma 426 9899 og skrá sig. Að hreyfingu lokinni er upplagt að koma við í Miðgarði og fá sér kaffisopa og spjalla.
Fyrsti tími verður þriðjudaginn 13. sept.
• Fyrir hádegi á miðvikudögum (09:00 - 11:45) verður boðið upp á námskeið í útskurði. Kennt verður í aðstöðu handverksfólks að Skólabraut (gamla slökkvistöðin) og leiðbeinandi Jón Adolf Steinólfsson. Kostnaður við námskeiðið er enginn en þátttakendur greiða efniskostnað. Hægt verður að fá lánuð útskurðarjárn en kost-ur er að eiga slíkt.
Fyrsti tími verður 21. september. Námskeiðið stendur yfir í 8 vikur. Tekið er við skráningu í Miðgarði í síma 426 8014.
• Á fimmtudögum frá kl. 14:00 er spilað í safn-aðarheimili kirkjunnar.
Annan hvern miðvikudag kl. 10:00 kemur Sr. Elínborg í heimsókn og spjallar við gesti og gangandi. Fyrsta skipti 14. september.
• Annan miðvikudag í hverjum mánuði kl. 14:00 er spilað bingó í Miðgarði. Fyrsta skipti 13. september.
• Þriðja miðvikudag í hverjum mánuði kl. 13:30 er spiluð félagsvist í Miðgarði. Fyrsta skipti 21. september.
• Á mánudögum kl. 10:15 verður boðið upp á boccia í íþróttahúsinu.
• Fyrsta og fjórða miðvikudag í hverjum mánuði kl. 15:00 - 16:00 er dans í Miðgarði. Fyrsta skipti 28. september
• Einnig bendum við á að á fimmtudagskvöld-um kl. 20:00 er spiluð félagsvist í „Framsókn-arhúsinu" Víkurbraut.
• Frá og með mánudeginum 26. september geta þeir sem vilja nýtt sér það að ganga inni í fjölnota íþróttahúsinu, Hópinu. Opnunartími er frá kl. 06:30 - 12:00 alla virka daga. Gestabók verður í húsinu og eru þeir sem nýta sér þetta tilboð beðnir um að skrá komur sínar í húsið.
Bæjaryfirvöld hvetja alla eldri borgara til að nýta sér þau tilboð sem boðið er upp á og fjölmenna í félagsstarfið. Því fleiri sem mæta því öflugra verður starfið.
Allar nánari upplýsingar veitir Stefanía Sigríður Jónsdóttir, í síma 426 8014 eða 660 7320.