Fólk með fötlun

Ávallt skal leitast við að veita fötluðum þjónustu samkvæmt almennum lögum á sviði menntunar og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Reynist þjónustuþörf hins fatlaða meiri en svo að henni verði fullnægt innan almennrar þjónustu skal hinn fatlaði fá þjónustu samkvæmt lögum nr. 59/1992 um málefni fatlaðra.

Ferðaþjónusta fatlaðra

Ferðaþjónusta fatlaðra
Markmið ferðaþjónustu fatlaðra sé að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda. Jafnframt skulu fatlaðir eiga rétt á ferðaþjónustu á vegum sveitarfélaga vegna aksturs á ýmsar þjónustustofnanir og vegna annarrar sértækrar þjónustu sem veitt er fötluðum sérstaklega

Liðveisla fatlaðra
Sveitarfélög skulu eftir föngum gefa fötluðum kost á liðveislu. Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.

Ef þú vilt sækja um vinnu sem liðveitandi smelltu þá hér.

Sambýli Fatlaðra
Sambýli fatlaðra í Grindavík opnaði þann 1. ágúst 2001 að Túngötu 15-17. Í húsinu eru sex íbúðir og tengjast þær allar með sameiginlegu þjónusturými. Gert er ráð fyrir sex íbúum. Allir íbúar heimilisins búa við mismundi fötlun og þurfa sólhringsþjónustu og því er heimilið nú rekið sem eitt rekstrarform.
Grindavíkurbær er eigandi húsnæðisins en Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi leigði húnæði af sveitarfélaginu þar til áramóta 2010- 2011 þegar málaflokkurinn fluttist til sveitarfélaganna, tók Grindavíkurbær þá alfarið við rekstri heimilisins. Í dag eru á heimilinu 6,1 stöðugildi sem skiptast á milli 10 starfsmanna.
Forstöðumaður Sambýlis fatlaðra í Grindavík er Guðný Sigfúsdóttir, sími 426 9909.
Netfang: gudnys@girndavik.is