
Á mínum síðum á Ísland.is hefur þú aðgang að ýmsum upplýsingum sem þig varða. Til að skrá þig inn smellir þú á innskráningu efst í hægra horni síðunnar og auðkennir þig með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum. Innskráningargluggi opnast líka þegar smellt er í fyrsta sinn á ýmsa valkosti á síðunni.
Tilkynning til eigenda um álagningu ársins 2012
Álagningarseðlar fyrir árið 2012 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út í bréfapósti.
Fasteignaeigendur geta nálgast álagningarseðilinn á www.island.is með því að skrá sig inn, annaðhvort með rafrænum skilríkjum eða veflykli RSK.
Grindavíkurbær mun þó senda einstaklingum 67 ára og eldri og fyrirtækjum álagningarseðil í bréfapósti.
Álagning fasteignagjalda 2012
Fasteignaskattur: Samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4 frá 1995 með síðari breytingum.
3. gr. laganna:
a) Allt að 0,5% af fasteignamati: Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
b) 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum: Sjúkrastofnanir, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn.
c) Allt að 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum: Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
Heimilt er sveitarstjórn að hækka prósentur tilgreindar í a og c liðum um allt að 25%.
Önnur gjöld eru ákveðin árlega af bæjarstjórn.
Undanþegin fasteignaskatti eru kirkjur, bænahús, safnahús og hús erlendra ríkja, sbr. 5 grein laganna.
Álagningarreglur
| Annað | ||||
| Íbúðir | Stofnanir | húsnæði | ||
| a-liður | b-liður | c-liður | ||
| Fasteignaskattur | 0,31% | 1,32% | 1,65% | af fasteignamati |
| Lóðarleiga | 1,20% | 2,00% | 1,60% | af fasteignamati |
| Holræsagjald | 0,13% | 0,25% | 0,25% | af fasteignamati |
| Rotþróargjald | 10.000 | 10.000 | 10.000 | kr. |
| Vatnsgjald | ||||
| Almennt vatnsgjald | 0,14% | 0,25% | 0,25% | af fasteignamati |
| Auka vatnsgjald | 15 | 15 | kr/m3 vatns | |
| Sorphreinsunargjald/tunnuleiga | 9.765 | kr. sorpílát pr. ár | ||
| Sorpeyðingagjald | 26.460 | kr. sorpílát pr. ár | ||
| Fjöldi gjalddaga | 10 | 10 | 10 |
1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8, 1/9, 1/10 og 1/11 2012
Álagning 15.000 kr. og lægri fer öll á 1. gjalddaga, þ.e. 1.2.2012
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega
Ellilífeyrisþegar
Ellilífeyrisþegar, sem orðnir eru 67 ára skv. álagningarskrá fasteignagjalda, eiga rétt á afslætti eða niðurfellingu á fasteignaskatti og holræsagjaldi á húsnæði sem er í þeirra eigu og þeir búa í. Gildir þetta líka ef maki þess sem skráður er fyrir íbúðinni hefur náð 67 ára aldri. Skv. ákvörðun bæjarstjórnar gildir hið sama um aldraða sem búa í íbúðum Búmanna.
Sækja þarf sérstaklega um afsláttinn og skila inn staðfestu skattframtali vegna tekna og eigna ársins 2011, þ.e. skattframtali 2012.
Öryrkjar
Öryrkjar með a.m.k. 75% örorku eiga rétt á afslætti eða niðurfellingu á fasteignaskatti og holræsagjaldi. Skila þarf inn staðfestu skattframtali 2012 ásamt örorkuvottorði.
Tekjuviðmið ársins 2012 (að meðtöldum fjármagnstekjum), vegna afsláttar á fasteignaskatti og fráveitugjaldi 2012.
| Tekjur | Tekjur | |
| einstaklinga árið 2011 | hjóna árið 2011 | Niðurfelling |
| 0 - 2.631.341 | 0 - 3.949.969 | 100% |
| 2.631.342 - 2.860.241 | 3.949.970 - 4.293.560 | 75% |
| 2.860.242 - 3.015.207 | 4.293.561 - 4.526.175 | 50% |
| 3.015.208 - 3.162.677 | 4.526.176 - 4.747.541 | 25% |
| 3.162.678 og hærra | 4.747.542 og hærra | 0% |

Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
