Eldri borgarar

  • 28. febrúar 2018

Félagsstarf eldri borgara og öryrkja 2017-2018:

Fimmtudaginn 8. september 2011 var tekin í gagnið ný aðstaða fyrir eldri borgara í Grindavík. Aðstaðan er á neðri hæð í Víðihlíð og hefur hlotið nafnið Miðgarður. Umsjón með starfinu í Miðgarði hefur Stefanía Sigríður Jónsdóttir forstöðumaður Miðgarðs. Símanúmer í Miðgarði er 426 8014.

Alla virka daga er hægt að kíkja í heimsókn frá 8.00 til 16.00, fá kaffi, lesa blöðin, spjalla, tefla, frír aðgangur er að tölvum, ofl.


Eftirfarandi frístundastarf verður í boði fyrir eldri borgara (60+) og öryrkja í Grindavík veturinn 2017-2018. 

Dagskráin í fullri upplausn

Allar nánari upplýsingar veitir Stefanía Sigríður Jónsdóttir, í síma 426 8014.

Félag eldri borgara
Félag eldri borgara í Grindavík er deild í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum (FEBS). Félagið sér um vorfagnað fyrir alla eldri borgara á Suðurnesjum auk félagsfunda, aðventugleði, þorrablóts og fleiri viðburða fyrir eldri borgara í Grindavík. Einnig er farið í vorferð og í leikhús.

Facebooksíða félagsins er: Feb Grindavík, þar er m.a. dagskrá vetrarins, viðburðir og fleira
Félagsstarf eldri borgara fer að mestu fram á neðri hæð í Víðihlíð, við Austurveg 5 - Miðgarði.
Allar nánari upplýsingar veitir formaður félagsins, Margrét Gísladóttir, margis2@live.com, s: 8963173

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 
Víðihlíð - hjúkrunardeild aldraðra Austurvegi 5 

Sími 426 – 7600. Fax 426 – 7610 
Hjúrunarforstjóri: Ingibjörg Þórðardóttir ingibjorgthordar@hss.is

Í vesturenda Víðihlíðar rekur Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hjúkrunardeild. Deildin var opnuð haustið 1992 og eru þar pláss fyrir 25 vistmenn.  

Læknir Heilsugæslustöðvar Suðurnesja í Grindavík sinnir hjúkrunardeildinni. Í Víðihlíð er rekið þvottahús og þar eru einkaföt vistmanna þvegin.

Félagsleg heimaþjónusta 
Megin markmið félagslegrar heimaþjónustu er að styðja fólk til sjálfsbjargar, efla sjálfstraust þess og sjálfsvirðingu og rjúfa félagslega einangrun. Aldraðir og öryrkjar eiga kost á félagslegri heimaþjónustu. Þörfin fyrir aðstoð er metin í hverju tilviki fyrir sig.

Dagvist aldraðra 
Dagvist aldraðra er með aðsetur í Víðihlíð við Austurveg 5 í Grindavík. Þjónustuþegi greiðir daggjald sem ákvarðað er í reglugerð ár hvert en innifalið í gjaldinu er flutningur til og frá dagvist, ásamt fullu fæði. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður.

Íbúðir aldraðra í Víðihlíð 
Grindavíkurbær á 12 íbúðir í Víðihlíð við Austurveg nr. 5 í Grindavík. Úthlutun íbúðanna er á hendi félagsmálaráðs en skilyrði fyrir úthlutun eru þau að umsækjandi hafi verið búsettur í Grindavík undanfarna 12 mánuði og hafi náð 72 ára aldri. Þá er stuðst við félagslegt og heilsufarslegt mat við úthlutun íbúðanna en matið annast hjúkrunarfræðingar. Umsækjendur greiða fyrir íbúðarrétt í upphafi en greiða svo leigu sem breytist í samræmi við neysluverðsvísitölu. Innifalið í leigu er rafmagn og hiti ásamt þeirri þjónustu sem veitt er íbúum hússins. Þegar íbúðinni er skilað fæst íbúðarrétturinn endurgreiddur samkvæmt reglum þar um.

Reglur um úthlutun íbúða að Austurvegi 5

Deildarstjóri öldrunarþjónustu
Stefanía S. Jónsdóttir, sími 426 8014. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR SÍĐUR