Fyrirlestur um Gunnar Gunnarsson í Vogum

Lestrarfélagið Baldur í Vogum verður með erindi um Gunnar Gunnarsson, rithöfund, miðvikudaginn 8.febrúar kl. 20:00 í Álfagerði, Akurgerði 25, í Vogum. Allir velkomnir!  Fyrirlesturinn er hluti af verkefninu Kynning á bókmenntaarfinum sem almenningsbókasöfnin á Suðurnesjum standa saman að. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurnesja. 
Gunnar Gunnarsson var einn af áhrifamestu rithöfundum Íslendinga á tuttugustu öld. Hann sló í gegn sem höfundur í Danmörku og á árunum 1912-1939 var hann meðal virtustu höfunda Norðurlanda og naut mikillar hylli bæði gagnrýnenda og lesenda. Í fyrirlestrinum verður fjallað um rithöfundarferil Gunnars og tengsl hans við heimalöndin tvö, Ísland og Danmörku. Einnig verður vikið að einkalífi skáldsins sem var stundum stormasamt. Sjá nánar á:  http://vogar.is/frettir/1406/default.aspx 

>> MEIRA
Fyrirlestur um Gunnar Gunnarsson í Vogum

ELDRI FRÉTTIR

Samstarf við bókasöfnin í Garði, Reykjanesbæ, Sandgerði og Vogum
Bókasafn Reykjanesbæjar, Lestrarfélagið Baldur í Vogum og Bókasafn Grindavíkur gerðu með sér samstarfs-samning 1. maí 2007. Bókasafnið í Sandgerði kom inn í samninginn 1. maí 2008 og Bókasafnið í Garði bættist svo í hópinn í ágúst 2011.
Með því að greiða árgjald í einu safnanna mun sama skírteinið gilda í öllum fimm. Lánþegar geta skilað og gert upp á einu þessara fimm safna, óháð hvaðan bækurnar og skuldin eru. Vonast er til að þetta verði notað til að stækka þann safnkost sem Reyknesingar hafa aðgang að, en nýta að öllu jafna safnkost síns heimasafns þegar hann er fyrir hendi. Mismunandi reglur um útlán og sektir eru hjá hverju safni og lánþegi þarf að kynna sér þær ef hann hefur hug á að nýta sér þetta. 

Safnkostur - lánstími og sektir:
Safnkostur er skráður í landskerfi bókasafna - Gegni - www.gegnir.is, einnig á gáttinni www.leitir.is  

Lánstími bóka er 30 dagar, nýjar bækur eru lánaðar til skemmri tíma fyrstu vikurnar (10 daga). Sekt fyrir hvern dag umfram leigutíma er kr.20.- á hverja bók.
Hægt er að hafa allt að átta bækur í einu auk nýsigagna (rafræn gögn), sem greiðist fyrir sérstaklega.

Framlengja má lánstíma bóka með því að fara inn á eigið svæði í Gegni og endurnýja sjálfur eða hringja á bókasafnið, en aðeins ef pöntun á þeim liggur ekki fyrir. Aðgangsorð fæst á bókasafninu.

Ferðahandbækur á íslensku og ensku og bækur með gönguleiðum víða um Ísland.

Námsefni Því miður kemur kreppan niður á þessum lið og verður ekki keypt inn nýtt efni um hríð. Við eigum til nokkuð af eldra námsefni (sumt ennþá notað!) Fjölbrautarskóla sem er lánað skammtímaláni, 15 daga í einu.
Sekt er kr. 20.- á dag á hverja bók.

Ný tímarit fást ekki lánuð út af safninu, en þau eldri eru lánuð í allt að tvær vikur.

Hljóðbækur - bókasafnið á lítið safn hljóðbóka. Blindrabókasafnið sér blindum og sjónskertum einstaklingum fyrir hljóðbókum, en þær eru nú eingöngu á MP3 diskum.

Tungumálanámskeið á tölvudiskum - íslenskunámskeið frítt!
Lifandi, skemmtilegt námsefni, leiga kr. 260.- á mánuði. Sekt umfram leigutíma kr.20.- á dag.
Eigum núna til íslensku-, dönsku-, sænsku- ensku-, þýsku, frönsku-, ítölsku, spænsku, rússnesku, pólsku, thaílensku, víetnömsku- námskeið.

Orðabækur og bækur sem kynna tungumál (á ensku) t.d. thailensku, arabísku og pólsku.

Myndbönd fyrir yngstu börnin fást í 2 sólarhringa ókeypis (gamalt efni), myndir á DVD á 260, sekt kr. 50.- á dag. Stiklur Ómars Ragnarssonar á DVD.

Fræðsluefni um fugla á VHS ókeypis, lánstími 14 daga, sekt kr. 50.- á dag.

Almenningstölva - Internetið gegn greiðslu:
Kr. 150.- fyrir 15 mínútur
Kr. 250.- fyrir 30 mínútur 
Kr. 400.- fyrir eina klukkustund
Prentun úr tölvu kostar 25 kr. blaðið.
Önnur tölva er fyrir leitir á Gegni.is og hægt að nota hana fyrir styttri Net-"heimsóknir".

Sögustundir (október - apríl), er hægt að panta í s: 420-1108 eða með tölvupósti á bokasafn@grindavik.is

Hvað er ég með í útláni?
Eftir að hafa fengið lykilorð frá Bókasafninu er hægt að skrá sig inn á „Mínar síður" á Gegni.
Farið á www.gegnir.is eða www.leitir.is
Við innskráningu er kennitalan slegin inn (án bandstriks) í reitinn Notendanafn og síðan lykilorðið í reitinn þar fyrir neðan. Nafn viðkomandi kemur þá efst til hægri á skjánum. Smella þá á Mínar síður og þá er hægt að skoða stöðuna og endurnýja og fl. 

Á „Mínum síðum" geta viðskiptavinir:

  • Séð hvað þeir eru með í láni
  • Endurnýjað lán ef enginn biðlisti er á gögnunum
  • Til að framlengja láni á myndböndum eða öðrum gjaldskyldum gögnum þarf að hringja í Bókasafnið
  • Sett sig á biðlista eftir gögnum sem eru í útláni. Leitið fyrst að bókinni, finnið eintakið og smellið á frátekt
  • Skoðað frátektirnar sínar og séð hvar í röðinni þeir eru
  • Skoðað fyrri útlán sín (aðeins 100 síðustu útlán sjást)

Við mælum með að lykilorði sé breytt eftir fyrstu innskráningu.

Eftir sem áður er viðskiptavinum velkomið að hringja í Bókasafnið og spyrjast fyrir um stöðu sína eða fá láni framlengt. Síminn er 420 1108


 

Bókasafn Grindavíkur

Víkurbraut 62, efri hæð. 
Sími: 420-1108, fax: 420-1111. 
bokasafn@grindavik.is    

Afgreiðslutími:    
Mánudaga - föstudaga 
kl. 11:00 - 18:00. 

Bókaverðir hjálpa til að finna heimildir og útvega efni frá öðrum bókasöfnum ef þörf krefur, en þá gegn greiðslu póstkostnaðar. 

Þeir sem ekki eiga heimangengt geta fengið bækur sendar heim. 

Skipsáhafnir geta fengið bókakassa gegn
ábyrgð útgerðarfélags.

Starfsmenn:
Forstöðumaður: 
Margrét Rebekka Gísladóttir,
bókasafns- og upplýsingfr.
bokasafn@grindavik.is 

Bókavörður: 
Guðrún Erla Hákonardóttir,
bókasafnstæknir
gudrunh@grindavik.is

Bókavörður: 
Guðbjörg Ásgeirsdóttir,
bókasafnstæknir
gudbjorga@grindavik.is

Aðstoðarmaður: 
Dóra Dís Hjartardóttir