Atvinnuuppbygging

Reglur um aðkomu Grindavíkurbæjar að atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu

1. gr. Tilgangur.
Reglur þessar eru til þess að styðja við atvinnulífið og viðhalda/fjölga atvinnumöguleikum í Grindavíkurbæ í því ástandi sem hefur skapast í þjóðfélaginu eftir hrun bankanna. Þá þurfi að finna leiðir til að aðstoða aðila með hugmyndir að nýjum atvinnutækifærum og nýjum fyrirtækjum í Grindavík.
Umsóknarferillinn er í eftirfarandi reglum settur fram í ljósi þeirra aðstæðna sem eru í þjóðfélaginu og kalla á óhefðbundnar aðferðir til að halda uppi stöðugu atvinnustigi í bæjarfélaginu.

2. gr. Gatnagerðargjöld.
Heimilt er að að veita félögum sem byggja nýbyggingar fyrir eigin atvinnurekstur í sveitarfélaginu afslátt af gatnagerðargjaldi skv. lögum nr. 153/2006, um gatnagerðargjald, og samþykkt um gatnagerðargjald fyrir Grindavíkurbæ. Skoða skal heimild til að veita afslátt til fyrirtækja með hliðsjón af því hve mörg störf skapast með tilkomu félags til sveitafélagsins.

3. gr. Önnur gjöld.
Vegna núverandi efnahagsástands og aukins atvinnuleysis er heimilt að veita tímabundið afslátt af gjaldskrám bæjarfélagsins í allt að 3 ár, frá og með flutningi heimilisfangs og starfsstöðvar í sveitarfélagið.
Skoða skal heimild til að veita afslátt til fyrirtækja með hliðsjón af því hve mörg störf skapast með tilkomu félags til sveitafélagsins.

4. gr. Hlutafé.
Heimilt er að kaupa hluti í félagi sem hefur verið með heimilisfang og starfsstöð sína í Grindavíkurbæ í einn almanaksmánuð.
Atvinnuþróunarsjóður leggur að hámarki 1/3 á móti félagi.
Áður en heimild þessari er beitt getur atvinnuþróunarsjóður leitað umsagnar atvinnu- og ferðamálanefndar og fengið utanaðkomandi, óháðan sérfræðing til að meta möguleg verðmæti félagsins og áhættu af kaupunum ef talið er að félagið geti aukið atvinnutækifæri í Grindavík.

5. gr. Lán.
Heimilt er að veita félagi sem er með heimilisfang og starfsstöð í Grindavíkurbæ lán gegn tryggum veðum.
Áður en heimild þessari er beitt getur atvinnuþróunarsjóður leitað umsagnar atvinnu- og ferðamálanefndar og fengið utanaðkomandi, óháðan sérfræðing til að meta möguleg verðmæti félagsins og áhættu af kaupunum ef talið er að félagið geti aukið atvinnutækifæri í Grindavík.

6. gr. Flutningsstyrkur
Heimilt er að styrkja félög sem flytja heimilisfang og starfsstöð í Grindavíkurbæ. Styrknum er úthlutað eftir að fyrirtækið hefur starfað í sveitarfélaginu í 1 mánuð.

7. gr. Umsóknarferill
Skila inn umsóknareyðublað með þeim gögnum sem þarf:
- Endurskoðaður ársreikningur eða áætlun
- Áætlun um starfsemi næstu árin
- Greinargerð um ástæður fyrir þörf á aðkomu bæjarins
- Fjöldi starfsmanna
- Líkleg þörf fyrir kaup á þjónustu í bæjarfélaginu - afleidd störf
Umsókn er sett í umfjöllun í atvinnumálanefnd og hún kemur með tillögu um afgreiðslu.
Aðili sem hefur áhuga á að flytja starfsemi sína til Grindavíkur verður boðaður á fund atvinnumálanefndar um umsóknina og áform sín um viðkomandi fyrirtæki.
Atvinnuþróunarsjóður leggur til við bæjarstjórn afgreiðslu umsókna úr atvinnuþróunarsjóði, sbr. greinar nr. 2 - 6.

8. gr. Endurskoðunarákvæði
Breytingar eru hraðar og stöðugar í þjóðfélaginu í dag og því þörf á að endurskoða þessar reglur fljótlega og þróa þær svo áfram, því verða þær endurskoðaðar næst í maí 2009.
Að öllu jöfnu endurskoðast reglurnar að hausti í tengslum við fjárhagsáætlunargerð.

Samþykkt í bæjarstjórn 11. mars 2009