Ásrún Helga Kristinsdóttir er bæjarfulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn
síðan 2014.
Hægt er að hafa samband í síma 781-2503 eða senda tölvupóst á netfangið: asrun@grindavik.is
Bakgrunnur:
Ásrún fæddist í Keflavík 17. október 1974 og ólst upp í Grindavík. Dóttir hjónanna Guðrúnar R. Jónsdóttur og Kristins Þórhallssonar. Ásrún lauk stúdentsprófi af málabraut frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 1994 og útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands með B.Ed próf í grunnskólakennarafræðum árið 2006. Ásrún hefur gegnt hinum ýmsu störfum en lengst hefur hún starfað við Grunnskóla Grindavíkur eða frá árinu 2001, sem deildarstjóri yngsta stigs frá árinu 2008. Kjörtímabilið 2010 - 2014 var hún formaður félagsmálanefndar bæjarins.
Fjölskylda:
Eiginmaður Ásrúnar er Reynir Ólafur Þráinsson og eiga þau tvær dætur, þær Margréti Rut fædda árið 1997 og Örnu Rún fædda árið 2005.
Áhugamál:
Samvera með fjölskyldu og vinum, fræðslu- og félagsmál, íþróttir og ferðalög innanlands sem utan.
Samhliða því að sitja í bæjarstjórn situr Ásrún í félagsmálanefnd og stjórn Kvikunnar.
Til heimilis: Staðarhraun 29, 240 Grindavík