Áhaldahús / Þjónustumiðstöð

Þjónustumiðstöð Grindavíkur
Hafnargötu 24, sími 426 8402.
Neyðarsímar 6607302, 660 7308 og 660 7315.
Netfang: bragi@grindavik.is
Opið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 7 til 17 og föstudaga frá 7 til 12.

Starfsfólk þjónustumiðstöðvar:
Bragi Ingvason, umsjónarmaður fasteigna, sími 660 7302
bragi@grindavik.is
Björgvin Vilmundarson, véla-og tækjamaður, sími 660 7315
Ásta Jóhannesdóttir, garðyrkjustjóri 660 7322
astaj@grindavik.is

Þjónustumiðstöðin sér um alla almenna þjónustu við íbúa bæjarins, s.s. viðhald á fasteignum og tækjum bæjarins, snjóruðning, hreinsunarátak og fjölmargt fleira. Hægt er að panta sorptunnur og varahluti í þær.

Snjómokstur:
Í forgangi eru aðalumferðargötur þannig að fært sé að Grindavíkurvegi, skólum, leikskólum, slökkviliðsstöð, heilbrigðisstofnun, niður að höfn, og ákveðinn öryggishring sem nýtist flestum bæjarbúum. Samhliða snjómokstri eru almenningsbílastæði í miðbænum mokuð enda gerð þeirra kostuð af sveitarfélaginu. Plön og heimkeyrslur við íbúðarhús og fyrirtæki eru ekki mokuð á kostnað bæjarins. Mokstur vegna öryrkja er við sérstakar aðstæður framkvæmdur samkvæmt beiðni félagsþjónustunnar.