Artic Horses
Hestabrekka 2
240 Grindavík
Ride@ArcticHorses.com
www.arctichorses.com
Sími 696 1919
Opið 1. júní til 15. september. Skemmtilegir útreiðatúrar á íslenska hestinum í stórbrotnu umhverfi um sögulegar slóðir til að mynda meðfram ströndinni þar sem skipsflök, fjölskrúðugt fuglalíf og saga er nánst við hvert fótmál. Einnig farið í útreiðartúra til Krýsuvíkur og fleiri staða.
Bláa lónið
Svartsengi
240 Grindavík
bluelagoon@bluelagoon.is
www.blaalonid.is
Sími 420 8800
Heimsókn í Bláa Lónið - heilsulind er fullkomið dekur fyrir líkama og sál. Heilsulindin er vel þekkt víðsvegar um heiminn og hefur meðal annars fengið verðlaun fyrir að vera besta náttúrulega heilsulind heims, einn af tíu ótrúlegustu baðstöðum heims og ein af 25 bestu heilsulindum í heimi.
Eldfjallaferðir
Víkurbraut 2
240 Grindavík
volcano@volcano.is
www.volcanotours.is
Sími 426 8822
Eldfjallaferðir skipuleggur ferðir með leiðsögn um Reykjaessskagann þar sem kynnt er jarðfræði, jarðsaga, menning og minjar. Einstök jarðfræðileg sérstaða Reykjaness er augljós þar sem úthafshryggurinn rís úr sæ í Eldey og gengur síðan áfram eftir Reykjanesskaganum, með eldstöðvum, gígum, sprungum, hraunum og hellum. Allur Reykjanesskaginn er undraheimur eldsumbrota. Þar eru meira en 100 eldstöðvar og 200 hellar.
Fjórhjólaævintýri ehf
240 Grindavík Iceland
Tangasund 1
info@atv4x4.is
www.Atv4x4.is - www.Atv-adventures.com
Sími 857-3001
Fjórhjólaævintýri sérhæfir sig í að taka á móti stórum sem litlum hópum og skipuleggur óvissuferðir, árshátíðir, fjölskylduhátíðir og nánast hvað sem er. Boðið er upp á bestu fjórhjól sem völ er á. Landslagið í Grindavík og nágrenni gerir það að verkum að þessar verðir verða að sannkölluðu ævintýri.
Bjóðum einnig upp á reiðhjólaferðir fyrir 4 til 20 manna hópa. Hægt er að velja á milli styttri eða lengri ferða allt eftir óskum og getu hvers og eins. Getum einnig skipulagt skemmtilegan dag þar sem tvinnað er saman göngu, hjóla og skoðunarferð. Tilvalið fyrir vinnustaðahópa og félagahópa sem hvataferðir, fjölskyldur og alla þá sem áhuga hafa á hreyfingu og útiveru.
Innifalið í ferðum: Hjól, hjálmar, leiðsögn og vatn. Aukakostnaður: Nestispakki frá Hjólaferðum.
Einnig: Leiðsögn og akstur, enska, Norðurlandamál, gönguferðir, óvissuferðir, ratleikir og jarðfræðiferðir.
Flagghúsið
Flagghúsið er eitt elsta hús Grindavíkur, talið vera byggt árið 1890. Í dag er þetta hús upphaf skipulagðrar byggðar í Grindavík, enda öll húsnúmer frá þessu húsi talin. Flagghúsið hefur m.a. verið íbúðarhús, verbúð, samkomustaður, beituskúr, pakkhús, salthús, veiðafærageymsla og netaloft. Auk þess er þarna sögusvið nóbelsverðlaunaskáldsins og leiksvið kvikmyndarinnar „Sölku Völku". Húsið var gert upp fyrir nokkrum misserum.
Flagghúsið hentar vel til þorrablóta með baðstofustemmingu undir súð. Mikill ásókn er að halda í húsinu ýmsar uppákomur: ferminga-, stúdenta- og afmælisveislur, prjónakaffi, tónleika, móttökur, fundi, sagnakvöld og söngskemmtanir.
Hellaferðir
Alls eru þekktir 460 hraunhellar á Íslandi þar af eru 200 á Reykjanesskaganum. Eldfjallaferðir í Grindavík hafa sérhæft sig í leiðsögn hópa og einstaklinga í skoðun hella. Við leggjum til búnað í hellaskoðun; hjálma, ljós, hanska og kuldagalla.
Upplýsingar í síma 426-8822
Netfang: volcano@volcano.is
Saltfisksetur Íslands - Upplýsingamiðstöð ferðamanna
Hafnargata 12 a
240 Grindavík
saltfisksetur@saltfisksetur.is
www.saltfisksetur.is
Sími 420 1190 & 660 7307.
Opnunartími: Kl. 11-18, alla daga, allan ársins hring.
Aðal upplýsingamiðstöðin í Grindavík er í Saltfisksetrinu og veitir hún almennar upplýsingar fyrir ferðamenn. Hún er opin allan ársins hring.
Grindavíkurbær rekur upplýsingamiðstöðina í samvinnu við Saltfisksetrið. Forstöðumaður Saltfisksetursins er Óskar Sævarsson.
Salty Tour
Borgarhraun 1
240 Grindavík
tgk@saltytour.com
www.saltytour.com
Sími 820 5750
Skoðunarferð með rútu um Grindavík og Reykjanes þar sem komið er við á mörgum áhugaverðum stöðum, m.a. þeim sem nefndir eru hér á heimasíðunni. Hægt er að panta sér skoðunarferðir en einnig er farið frá Bláa lóninu. Sjá nánar á heimasíðu Salty tour.
Sjólist
Verbraut 3, 2. hæð
240 Grindavík
sjolist@simnet.is
www.sjolist.is
Sími 893 3712
Handverkshús, vinnustofa og gallerí á vegum Lindu Oddsdóttur, listakonu, með glæsilegu útsýni til sjávar og sveita. Alltaf heitt á könnunni.
Sportsigling
sportsigling@sportsigling
www.sportsigling.is
Sími 892 7776 / 867 8192
Sportsigling býður upp á heildarlausir í afþreyingu fyrir farþega. Sportsigling getur útvegað akstur til og frá höfn gegn vægu gjaldi. Markmið fyrirtækisins er að veita ferðaþjónustu í hæsta gæðaflokki á sviði sjóstangveiði, hvalaskoðunar, náttúruskoðunar, fuglaskoðunar, ævintýra og óvissuferða.
Stakkavík
Bakkalág 5b
240 Grindavík
Sími 420 8000
Skoðunarferðir fyrir ferðamenn um fiskvinnslufyrirtækið Stakkavík þar sem ferlið er sýnt frá því fiskurinn er veiddur og þangað til hann er flakaður og snyrtur. Matsölustaður á staðnum þar sem boðið er upp á dýrindis fiskrétti.
Seltjörn
Seltjörn er veiðivatn á Reykjanesi, steinsnar frá þjóðveginum á leið til Grindavíkur. Í vatninu hefur verið ræktaður stofn urriða og bleikju sem nú býðst áhugasömum veiðimönnum að kljást við.
Frá apríl til septemberloka er opið 10 - 21 alla daga og eru veiðileyfi seld í Fitjagrilli á Fitjum.
Verð fyrir dagsleyfi er kr. 1.000 fyrir fullorðna. Frítt fyrir börn og unglinga, eldri borgara og öryrkja.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 822 5300.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
