Auglýsing um endurskoðun á aðalskipulagi Grindavíkur 2010 -2030
Auglýst er tillaga að endurskoðuðu aðalskipulagi ásamt umhverfisskýrslu. Tillagan er auglýst með vísan til 1. mgr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla munu liggja frammi til kynningar á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62 í Grindavík frá 9. apríl 2011 til 23. maí 2011. Enn fremur eru tillögurnar til sýnis hjá Skipulagstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.grindavik.is.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skilað á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, merkt „Endurskoðun aðalskipulags 2011" fyrir 23. maí 2011. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar
| Aðalskipulag þéttbýli | Aðalskipulag dreifbýli | Greinargerð |
| 1. Sérkort - eignarhald | 2. Sérkort - Vatnsveita | 3. Sérkort - Verndarsvæði |
| 4. Sérkort - Námu/iðnaðarsvæði | 5. Sérkort - Samgöngur | 6. Þéttleiki |
Auglýsing: Endurskoðun aðalskipulags Grindavíkurbæjar 2010 til 2030 (birt 20. apríl)
Opinn kynningarfundur um endurskoðun aðalskipulags 8. mars 2011
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
